Það er eitthvað að gerast hérna í Vesturbænum. Heklunálin er farin að hreyfast meira og meira á kvöldin og lítil tuskudýr verða til. Þetta litla krútt varð til um daginn. Hef verið með fílinn "í maganum" síðan ég prjónaði þennan hér um árið.
Einu sinni var honum strítt fyrir að vera með stór eyru, en nú er hann mjög feginn að geta falið sig á bak við þau.
Hann veit samt fátt skemmtilegra en að leika sér og dansa og taka guðdómlega fallegar ljósmyndir.
2 ummæli:
Ég verð að fara að koma mér í fígúru gírinn. Vonandi öðlast ég þolinmæði einn daginn til að klára eitt stykki :P
Já Elín, það er ótrúlega skemmtilegt að hekla fígúrur. En nú er Oddur bleiki fíllinn týndur :( sakna hans sárt!
Skrifa ummæli