Pages

sunnudagur, febrúar 06, 2011

Fljótlegt föndur með öllum

Það er svo gaman að föndra og það geta allir föndrað. Mér finnst samt ótrúlega gaman þegar sé hvað Högni getur verið flínkur og flottur. Við föndruðum smá gluggaskraut um daginn til að lífga upp á gráan hversdagsleikann. Dagarnir voru sérstaklega gráir þar sem öll jólaljós voru tekin niður í vikunni og veðrið heldur blautt og ...já grátt!
Það sem þarf er spottar í mörgum litum (ekki vitlaust verkefni eftir að maður er búin að prjóna peysu í mörgum, mörgum litum og allir endar frágengnir)
Svo þarf límtúpu með fljótandi lími sem verður glært þegar það þornar. Límstifti gengur ekki, en trélím gæti gengið.
Plastdúkur til að leggja frá sér og svo er hann líka góður fyrir borðið og einn pappadisk.

Þá er málið að hellið góðum slatta af líminu á diskinn. Því næst er garnið sett út í límið. Þá hefst vinnan fyrir alvöru. Þekja þarf alla spottana með lími. Því meira lím því betra, eða svona næstum því. Ekki má vera þurr blettur á garninu.

Eftir að garnið er vel þakið lími er, spottunum raðað á plastdúkinn eftir miklu og listilegu innsæi. Því næst þarf límið að þorna. Það getur tekið smá stund að láta límið þorna, jafnvel heila nótt. Best er að það sé alveg þurt, enga óþolinmæði hér, takk fyrir! Eftir það er skautið plokkað af dúknum, girnið þrætt upp á og fallega gluggaskrautið hengt upp.

Ekki verra að eiga listamann í fjölskyldunn!