Pages

sunnudagur, júní 10, 2012

Mjög töff snagar ala Valur bróðir - GESTA BLOGG



Bloggið mitt er aldrei meira alvöru en þegar ég fæ gestabloggara til að sýna listir sínar. Núna er það snillingurinn hann bróðir minn, Valur, sem er gestur Z-unnar. Hann, konan hans Þóra og litla krúttsprengjan sonur þeirra, hann Þórir eru ný flutt í fallega íbúð. Þau hjónaleysin hafa gert íbúðina mjög fallega og kósí og mér það kom mér á óvart hversu lunkinn Valur er við alskonar föndur. Hér sýnir hann snilli sína í að búa til mjög töff snaga. Gefum honum orðið.

-x-x-x-x-x-

Ég fór í Epal um daginn og sá mjög töff snaga, þ.e. svona marglitaðar kúlur sem stóðu einar og sér út úr vegnum. Mér fannst þær mjög flottar, en fannst nokkuð bilað að kaupa þær á ca. 5-6 þús stykkið.

Ég ákvað að búa til mína eigin snaga, bæði af því að það er töff :) og líka til þess að andyrið mitt sé ekki eins og andyrið hjá 100 öðrum á Íslandi. Það er nefninlega nokkuð pirrandi að ef eitthvað er flott á Íslandi, þá eiga það allir (sem gerir það minna flott fyrir vikið).

Orginal hugmyndin kom af netinu (http://www.instructables.com/) en það er mjög töff síða fyrir svona DIY (Do-It-Yourself) verkefni, það er vest þó að álagningin á skrúfur, spýtur og annað smádrasl er svo mikil á Íslandi að það eru ekki mörg verkefni sem borga sig.


Það sem þú þarft til þess að búa til steypuperur er eftirfarandi:
1) Sement, ég keypti "Småmur" í Húsasmiðjunni (3 kg. dúnkur, er nóg í ca. 10-15 perur. Ég myndi passa mig á hraðþornandi sementi, ég prófaði það og náði varla að hræra það saman áður en það fór að harna...
2) Pera ónýt eða ný (kostar ca. 70 kr. í Bónus)
3) stórar skrúfur til þess að festa í peruna og skrúfa í vegginn. Ég var með 12 cm skrúfur sem ég fann í Húsamiðjunni.
4) Eitthvað til að blanda sementið í.
5) Eitthvað til þess að styðja við perurnar á meðan þær eru að þorna.
6) Öryggisglerugu, helvítis glerbrotin skjótast út um allt :)
7) Trekt, ég fann nokkrar í Byko á 400 kr. Ég sá þær líka í Bónus um daginn, þar voru þær eitthvað ódýrari.

Síðan er bara að hefjast handa.



























Þú notar töng til þess að taka málmsnertiflötinn aftan á perunni af. Bara klemma hann og toga, hann fer nokkuð auðveldlega.


Þú brýtur þetta svarta sem er á perunni, það er eitthvað glerkennt efni sem gefur nokkuð auðveldlega eftir.
Eftir það þá er bara að troða einhverju hörðu t.d. skrúfjárni eða sexkannti niður í peruna og hreina innan úr henni tilgangurinn með þessu er að búa til leið fyrir steypuna niður í peruna.



Stundum er maður full grófur og rústar einni og einni peru, en það bara gaman :)



Maður er nokkuð fljótur að gera nokkrar perur í einu, enda er lang best að gera allt í einu þar byrjunartíminn er svo mikill að þú ert 90% af tímanum sem fyrstu peruna og 10% með næstu 5.
Ég mæli því með því að gera nokkrar í einu.


Ef perurnar eru með einhverri húð að innan þá þarf að skola þær og hreinsa þær til. Síðan þarf að bíða þar til þær þorna. (tímafrekt því miður), en fyrir þá sem nenna ekki að bíða er hægt að opna perukassana í búðinni og athuga hvort að þær séu alveg glærar eða mattar.

Síðan er bara að hefjast handa við að blanda múrinn (eða steypuna, eftir því hvað þú vilt vera nákvæmur). Ég var með drasldollu sem ég blandaði þetta í og hrærði bara í með höndunum, enda magnið ekki geðveikt.

Síðan notar maður trektina til að troða þessu niður.
ATH með mismiklu vatni færðu mismunandi áferð, ef þú vilt fá sléttari áferð notarðu meira vatn og ef þú vilt fá hrjúfari áferð þá notarðu minna vatn. Ég prófaði bæði og fannst bæði geðveikt töff :)




Síðan seturðu skrúfuna í (skrúfan þarf að vera nógu sterk til að halda uppi ca. 10-20 kg.) Svo ég valdi mjög myndarlegar skrúfur. Passiði bara að skrúfuhausinn passi ofan í perustæðið.


Síðan er bara að bíða í ca. 2-3 daga á meðan steypan harnar.

Þegar steypan er hörnuð þarftu að brjóta glerið burt, hérna skal setja upp geraugun því glerið er óhrætt við að hoppa í allar áttir. Best er að nota eitthvað hart og berja laust, en samt nógu fast til að brjóta glerið.
Þetta er skemmtilegasti hlutinn því snaginn er alveg að verða tilbúinn :) Ég mæli líka með að fara með eitthvað hart og oddhvasst í efsta hluta perunnar því glerið á það til að vera nokkuð fast þar uppi. Ég notaði auka skrúfu til þess að losa um glerið.


Þegar þetta er búið er peran tilbúinn. Þá er bara að bora í veginn og hengja upp... WHALLA !!





6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En ótrúlega töff og skemmtilegt!
Ein spurning samt; með hverju málar gestabloggarinn steypuna?

Með sumarkveðju,
Sigurlaug

Marín sagði...

...góð spurning Sigurlaug. Ég skal spyrja hann :)

valur_fannar sagði...

Þar sem lokaafurðin er steypa er hægt að nota allt sem festist við steypu (sem er eiginlega allt).
Ef þú getur notað það á veggina þá virkar það á snagann.

Í prófunarkasti notaði ég bæði lakkmálingu og iðnaðarlakkmálningu. Bæði lítur vel út, en það er betra að hafa þynnri málningu þar sem minni líkur eru á að fá pennslaför með henni.

Nafnlaus sagði...

...GEGGJAÐ!!! Svo ótrúlega töff snagar...og hugmyndin sjálf er líka bara æðisleg!! :)

Kv,
Elísabet í Njarðvík

Nafnlaus sagði...

Very nice! Alveg geggjað. Vildi að ég hefði nennuna í þetta töffi töff.
AnnaLú

Nafnlaus sagði...

Valur þú ert svo myndarlegur....meiriháttar flott hjá þér og ykkur. Ég þarf að prófa þetta. Marín, Valur getur líka verið með gestablogg og sýnt myndina sem hann gerði, hún var svo hrikalega flott.
Kveðja
Ína.