Það sem ég er með á prjónunum er heldur fátt að þessu sinni. En ég hef verið mjög dugleg að kaupa garn aftur á móti. Ég er heltekin af silki. Það er fátt fallegra en silki, fátt mýkra og fátt já jafn spennandi og silki, en ég er sjaldnast með verkefni í huga þegar ég kaupi garnið svo að ég enda með því að safna því en prjóna minna. En ég er samt búin að fitja upp á einni peysu handa prinsinum.
Einnig var ég í smá vafa með hvaða bók ég ætti að velja. Ætti að vera með smá hvíta lygi og segjast vera að lesa The World is Flat eftir Thomas Friedman, en ég er ekki byrjuð að lesa þá bók. Eða ætti ég að segjast vera að lesa Makalaus eftir Tobbu Marínós sem kom mér að vísu skemmtilega á óvart á ferðalaginu. Hló nokkrum sinnum upphátt, en í raun er ég búin með þá bók og því ekki alveg satt að segjast vera lesa hana.
En þá leit ég á borðið og sá Greppikló. Hugljúf ljóðabók um hið smá sem sigrast á hinu stóra, dulrænir vættir, ljót tröll og tryllinglegur spenningur, þe ef maður er tveggja. Bók sem slær alltaf í gegn á hverju kvöldi.
4 ummæli:
Vá, girnilegt garn !
Halldóra - yfirprjónaperla... :-).
Ég elska Greppikló, uppáhaldsbókin hans Kristófers i fyrra...
Knús Unnsa og co.
Ég elska Greppikló, uppáhaldsbókin hans Kristófers i fyrra...
Knús Unnsa og co.
Greppikló er yndisleg! Prjónaði skrímslabuxur fyrir eldri strákinn minn með Greppikló á rassinum :-) Þessar bækur eru lesnar til skiptis á hverju kvöldi á mínu heimili!
Skrifa ummæli