Pages

sunnudagur, október 23, 2011

Lítill prins

Í byrjun október setti ég nokkur blogg á "auto-pilot" svona til vonar og vara þar sem ég átti von á litla stráknum mínum þann 3. okt. Vildi samt ekki að allt dytti hérna niður rétt á meðan ég væri að horfa á hann fyrstu dagana. En svo leið og beið og dagarnir liðu einn af örðum. Þeir enduðu á því að vera 15 dagar sem liðu og pilturinn ákvað að koma ekki í heiminn fyrr en 2 tímum fyrir gangsetningu á Landspítalanum.

Hann er alveg guðdómlega fallegur og vel heppnaður. Eitt af því flottasta sem mér hefur tekist að búa til í þessu lífi. Hitt eintakið sem heppnaðist svona vel var bróðir hans. En þetta er auðvita samstarfs verkefni svo ég get ekki alveg eignað mér heiðurinn ein.

Hérna er hann 4 daga gamall í Cocoon sem ég prjónaði eitt kvöldið þegar ég var að bíða eftir honum. Það fóru tvær dokkur af Navia Passion og sennilega tveir tímar að prjóna þennan einfalda en sæta og hlýja "sokk". Uppskriftina fann ég frítt á Ravelry en þar heitir hún Button-Up Baby Wrap eftir Kimberly Wood.

fimmtudagur, október 13, 2011

Fjöruferð

Það er fátt betra en að eiga góða vini!
Einn eftirmiðdag í góðu haust veðri fórum við í fjöruferð með vinum okkar, þeim Önnu og Andra. Fullkomin ferð. Við fengum ljúffengt nesti og urðum blaut í fæturnar, alveg eins og sönn fjöruferð á að vera. Takk Anna og Andri fyrir góðar stundir.




sunnudagur, október 09, 2011

Litað garn


Það er svo spennandi að lita garn. Mér finnst fátt meira töff en heimalitað garn en samt geri ég allt of lítið af því. Sennilega er það vegna þess að ég veit aldrei hvernig litaútkoman verður og því hef ég ekki verkefni í huga áður en ég byrja. Byrja kannski á vitlausum enda?

Mamma og pabbi fóru vestur í haust og tíndu ótrúlegt magn af berjum. Mamma saftaði tvisvar úr krækiberjunum, ummm dýrindis safi sem kom úr þeim fullur af orku og vítamínum úr íslenskir náttúru, er hægt að biðja um það betra? Held ekki. Hún gaf mér svo hratið til að nota í litun. Ég slefaði alveg yfir litnum á tuskunni sem hún notaði til að þrífa eftir saftið, en fallega fjólublár! vá!

Ég ákvað svo að skella berjunum sem við Högni tíndum með Önnu og Andra um daginn við hratið frá mömmu.

Garnið sem ég ákvað að nota er garn sem ég fékk eftir að fallega Amma Ína féll frá. Bleiki liturinn er ekki mikið notaður á þessu stráka heimili og svo átti ég auka tvær dokkur í hvítum lit svo ég ákvað að prufa þetta saman.

Þá var það bara að byrja. Ég skellti hratinu í pott, mamma var búin að frysta það svo að ég bætti smá vatni við hratið svo í byrjun.

Svo tók ég indverska töfrasprotann og tók nettan Dexter á þetta. Hakkaði berin sem við Högni tíndum alveg í spað.

Svo var byrjað að kreista safna úr hratinu og berjunum. Það tók enga stund svo sem, berin voru mjög safarík.
Ég ákvað að skella líter af vatni út í safan svo að ég fengi nóg saft til að vinna með. Á þessum tímapunkti var ég mikið að pæla að búa bara til berjasaft, það er svo gott að staupa sig á morgnana með einu staupi af krækiberjasafti. En nei ég ákvað að halda áfram. Skellti slurk af ediki og salti úti og þá var ekki aftur snúið.

Ég nennti ekki að vinda dokkurnar upp á nýtt heldur skellti þeim bara heilum ofan í, liturinn var svo sterkur og fallegur. Lét þetta malla við vægan hita í um klukkustund.
Þá var bara að skola og skola vel úr köldu vatni.


Afraksturinn fallega fjólublátt garn, sem ég held að gæti verið fallegt með skær grænu eða? Eru þið með hugmyndir? Það er smá lita munur á garninu ég held að þetta ljósara hafi verið bleikt og dekkra hafi verið hvíta garnið. Ég er mjög ánægð með útkomuna og hlakka mikið til að prjóna eitthvað fallegt á þá bræður :)

miðvikudagur, október 05, 2011

Apaskott úr sokkum

Ég elska að hekla bangsa og önnur mjúk dýr. Það er eitthvað við handunna bangsa/kanínur sem er svo sjarmernadi. Sá um daginn mynd af apa eða sock monkey og var ekkert að velta því meira fyrir mér.

En svo voru alltaf að sjá þá oftar og oftar og áttaði mig þá á því að þetta eru apar gerðir úr sokkum.
Sumir rosalega sætir
og röndóttir
Og svo virðist sem það se ekkert mál að gera þetta: sjá hér einfalt myndband

mánudagur, október 03, 2011

Heklað fyrir litla snúð

Munið eftir þessum pósti hér og ég vissi ekkert hvað ég átti að gera úr nýja bómullargarninu sem ég hafði keypt í Sösterne Grene.

Ég ákvað að skella í einn bangsa handa verðandi erfingja no. 2 (þegar Högni var ófæddur átti hann ofur mörg falleg gælunöfn, en þetta grey sem er áætlað í heiminn í dag hefur ekki fengið neitt nafn, týpískt barn no.2?).

Ég gat ekki gert upp á milli hvort ég ætti að nota túrkísbláa eða fagur græna litinn svo ég notaði þá bara báða. Er voða sátt með útkomuna.


Högni var voða hrifinn af kanínunni "sinni". Það þurfti smá sannfæringu að þessi kanína væri fyrir litla barnið, hann ætti aðra og hún væri blá. Kanínan hans var grafin upp úr dótakassanum og hann hefur ekki sleppt henni síðan, sofnar með hana og vill hafa hana hjá sér. Já nú nálgast dagurinn þar sem samkeppnin um athyglina byrjar...

laugardagur, október 01, 2011

Nýtt útlit

...samt ekki hjá Sjá einum!

Blogger bauð mér að skoða nýja útlið hjá sér sem og ég gerði. Ég dauð sé í raun eftir að hafa gert það, því að ég finn ekki gömlu borðana mína aftur.

Þarf að læra að hanna mitt eigið look. Kann einhver einfalda leið?

þriðjudagur, september 27, 2011

Gjöf

Högni fór um daginn í pössun til Ömmu Steinu. Það er alltaf þvílík hamingja að fá að vera hjá henni enda er hann eins og kóngur í ríki sínu hjá henni. Hann fær að enduraða blómunum þannig að þau verða að skóg þar sem úlfar og önnur rándýr búa. Hann fær bolta ís í stórum stíl og almenn gleði.

Þegar við komum og sóttum hann daginn eftir beið okkar þessi fallegi blómvöndur sem hann hafði tínt handa okkur. Hafi þið séð fallegri blóm?

sunnudagur, september 18, 2011

Hin mörgu andlit Högna

Högni vildi endilega prjóna fyrir "litlabarnið" og fékk þá eins og svo oft áður prjóna og smá garnspotta til að "hræra í", þetta er mikið sport og þolinmæðin endist í ca. 5 sec. eða svo.

Á meðann hann var að "prjóna" sagðist hann þurfa að "fá skegg, eins og pabbi" sem er svolítið fyndið því að pabbi hans er eins og Njáll á Bergþórshvoli, honum varla vex skegg. En hvernig er hægt að bregðast svona fallegri bón? Svo gamla gæran frá mömmu var tekin fram, stutt teygja og skæri og Högni fékk skegg, eins og tröll (já áherslurnar breytast hratt þegar maður er tveggja og hálfs).

Hin mörgu andlit Högna, gjörið svo vel...

laugardagur, september 10, 2011

Berjamó

Við Högni skruppum í berjamó um daginn og plötuðum góða vini með okkur. Aðal sportið hjá strákunum var þó að borða nestið úti. Skil þá vel.

En þeir voru samt mjög duglegir við að tína. Og eins og sést er mjög mikilvægt að hafa páfagauk með sér í berjamó og sleppa ekki af honum hendinni.

Mamma hvalur eða mamma kengúra eins og Högni kallar mig þessa dagana hlammaði sér við eitt lyngið og sat þar bróðurpartinn úr ferðinni.

Ég lét svo Högna um að hlaupa til og frá og ná í hitt og þetta. Mjög gaman og svo var hann ótrúlega duglegur að tína.
Fallega Anna og fallegi Andri komu með okkur. Það má samt alveg fylgja með sögunni að það voru gæði berjanna sem skipti máli en ekki magnið.
Nú er bara að safta... ...eða lita garn sem er líka mjög freistandi!

fimmtudagur, september 08, 2011

Lappað upp á ömmustól

Ég er að átta mig á því að það er ansi stutt í 3. október, en ótrúlega margt sem þarf að gerast áður en sá stutti fæðist. Eitt af því var að lappa upp á ömmustólinn sem ég fékk fyrir Högna. Stóllinn er í sjálfum sér allt í lagi, en áklæðið fannst mér alveg... ...herfilegt! Það er eitthvað við Disney myndir sem ég bara meika ekki.

Á flest öllum myndum sem á af Högna í stólnum góða hef ég sett teppi yfir hann svona svo að stólinn sjáist ekki á mynd. Svo að það voru góð ráð dýr. Ég varð að lappa upp á stólinn.



Stóllinn er vel merktur um að "þetta" og "hitt" megi ekki og að fyrirtækið er ekki ábyrgt ef "þetta" og "hitt" gerist. **Jakk**



Svo var áklæðið líka farið að láta ásjá. Vel notað enda stóllinn fínn í raun og veru.
Það var svo í stuttri ferð í Ikea þegar ég áttaði mig á því að það væri lausn á Disney vandanum. Nú maður saumar bara nýtt á stólinn. Efnadeildin í Ikea kemur skemmtilega á óvart, mikið úrval en þar sem ég var á hlaupum með tvo karla með í för var bara að velja það sem fyrst greip augað og tvinna og whalla... þetta var útkoman.




Verð að viðurkenna að það tók aðeins lengri tíma að finna smellurnar fyrir stólinn. Langaði mikið að hafa þær í skemmtilegum lit en fann bara svartar og hvítar smellur. Þessar fann ég loks í Föndru sem og bleik/burgundy borðann.


Svo komu skáböndin hennar Ömmu Ínu að góðum notum. Ótrúlega mikið sem ég notaði þau í þessu verkefni og ég er svo sátt!





Skrautlegur stóll fyrir verðandi erfingja no. 2. Get sátt krossað við eitt verkefni af "to-do" listanum, vandinn er það bætist bara svo hratt á listann.

Ákvað að skella honum inn á Innlit útlit síðuna á Facebook, endilega like-ið ;-)

miðvikudagur, ágúst 31, 2011

Garn


Það færst orðið garn á fáránlegustu stöðum og oft bara alveg ágætlega fallegt garn. Um daginn rakst ég á þessar dokkur í Sösterne Grene. Ekkert ofsalega ódýrt, rúmlega 300 kr. dokkan, en fallegir eru litirnir og ég hlakka til að skapa eitthvað fallegt úr þessu djásni.

Hvað það verður veit enginn :) enda vandi um slíkt að spá. Er nokkuð farið að styttast til jóla?


þriðjudagur, ágúst 23, 2011

Notað og nýtt

Ég verð að viðurkenna að það eru ekki margar flíkur sem gera mig mjög hamingjusama á meðgöngunni. Þó dettur ein og ein flík í fangið á mér sem ég gæti hugsað mér að sleppa því algjörlega að þvo og vera bara stanslaust í henni. En þá grípur heilinn fram fyrir hendurnar á mér, líkt og hann gerir iðulega þegar ég sé mikið glys og glingur og segir við hjartað "nei hættu nú alveg stelpa, þetta gengur ekki!"

Einni svona flík nappaði ég af systur minni sem í sakleysi sínu lánaði mér hana á síðustu meðgöngu. Þetta er svartur kjóll sem einhverra hluta vegna er algjört æði! Ég dró hann fram um daginn og ætlaði í honum í vinnuna þegar heilinn tók öll völd:

- "Sko þetta gengur ekki!"
- "Hann eru upplitaður!"
- "Það eru göt hér og hér og hér!"
- "Og svo er hann teygður og togaður!"
- "Hann er slitinn og lykkjuföll sjást við saumana!"

Úff það var sama hvað ég reyndi að réttlæta það að fara í honum þá var það ekki hægt svo nú voru góð ráð dýr.

Ég fann gamlan Emami kjól sem ég hafði aldrei notað og nýtti efnið úr honum til að búa mér til nýjan "uppáhalds-kjól". Auðvita er nýi kjólinn ekki næstum eins og gamli kjólinn enda vantar öll götin, hann er ekki jafn mikið þveginn og liturinn er alveg ferskur. En hann gerir sitt gagn. Ég bætti að vísu við beltinu svona upp á puntið og er bara anskoti sátt við hann.

Alveg hoppandi glöð.