Ég var svo heppin að fá að hekla þetta fallega skírnardress á lítinn vin. Það var gaman.
miðvikudagur, febrúar 26, 2014
sunnudagur, febrúar 16, 2014
Húfutetur
Heimaprjónuðu jólasveinahúfurnar slógu í gegn í desember og sá yngri tók hana varla niður, það var helst í baði sem hún fékk að fara af kollinum, því að hann svaf með hana líka.
Þegar komið var fram í janúar varð ég því að bregða á annað ráð og gerði því eins og Grýla, bjó til nýjar húfur sem ekki eru notaðar í desember. Sú fyrsta var of lítil og fór því til Rauða krossins, næstu tvær slógu í gegn.
Þegar komið var fram í janúar varð ég því að bregða á annað ráð og gerði því eins og Grýla, bjó til nýjar húfur sem ekki eru notaðar í desember. Sú fyrsta var of lítil og fór því til Rauða krossins, næstu tvær slógu í gegn.
miðvikudagur, febrúar 12, 2014
Nýtt matarblogg
Ég vinn ótrúlega skemmtilega vinnu á daginn þar sem ég fæ að fylgjast með kraftaverkum gerast svo oft. Í dag fékk ég að vita af þessu kraftaverki sem ég hafði örlítið með að gera. Sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum er að aðstoða fullorðna afganska konu við að bloga matarblogg. Ótrúlega flott framtak og svo margar hindranir sem verið er að yfirstíga. Ég brosi hringinn... og slefa yfir afgönskum og írönskum mat... nammi namm!
http://havalinda.weebly.com/
http://havalinda.weebly.com/
mánudagur, febrúar 10, 2014
Garnbana átakið mikla og verkefni tengd því
Ég er að taka þátt í garnbana átaki Hnoðra og hnykla á Facebook sem er ótrúlega þarft átak. Allavega þarft fyrir garn-junkies eins og mig. Reglan er sú að nota það garn sem nú þegar er til á heimilinu og ekki kaupa nýtt. Ég "neyðist" til að saxa á ótrúlegt magn af garni sem ég á. Mjög gott... og skapar pláss fyrir nýtt garn.. ho ho ho.
Eitt af því sem ég hef gert er þessi trefill hér, heklaður úr færeysku garni sem ég verslaði sumarið 2010 en hafði ekki verkefni fyrir það þá. Það er svolítið gróft og ég var nokkuð efins á mðan ég var að vinna úr því, eftir ég var búin að þvo garnið varð það dúnmjúkt og gott að hafa um hálsinn. Svo ég varð sáttari.
Markmiðið var að koma því í Sýrlandssöfnunina en ég var of sein, ekki að hekla það heldur að drífa mig með það á staðinn, bjáninn ég. Ætla samt með það því að Rauði krossinn er alltaf að safna handunni vöru og senda til Hvíta Rúslands. Það fer allavega þangað sem þess er þörf, það er nokkuð víst.
sunnudagur, febrúar 02, 2014
Heklað fyrir smáfólkið
Eins og þið vitið þá kom bókin mín góða, Heklað fyrir smáfólkið, út fyrir jól. Ég var mjög ánægð með útkomuna enda gekk í raun allt upp. Vinkona mín Móa Hjartadóttir snillingur tók allar myndirnar og ég er í skýjunum. Hún kann að láta hekl-fígúrur lifna við fyrir framan kamerúna. Snillingur!
Hérna eru myndir sem hún tók fyrir bókina en voru ekki notaðar.
Njótið!
fimmtudagur, janúar 30, 2014
Nýtt ár nýjar áskoranir
Nú er komið nýtt ár með nýjar áskoranir. Áskorun fyrir 2013 var að koma bókinn minni út. Í nóvember var hún komin í hillur og ég brosti hringinn. Ef þú ert ekki búin að kaupa eintak skaltu hlaupa út í búð núna!
En hverjar eiga að vera áskoranir fyrir árið 2014?
Það eru margir duglegir við að pósta öllu því handverki sem þeir hafa gert yfir árið og fá þannig yfirlit yfir það það sem verið er að vinna að. Hljómar smá spennandi.
Það sakar allavega ekki að prufa. Svo hér kemur smá upptalning fyrir janúar.
Í byrjun árs varð náttuglan til, hún er hluti af garn-bana-áskorun hjá þeim stöllum sem skrifa á Hnoðrum og hnyklum. Ég tek þessari áskorun mjög alvarlega og vinn ötulega að því að nota afganga í þessari skemmtilegu áskorun.
Svo var það bleikt eineygt skrímsli
Hanna kolkrabbi varð líka til
Uppskriftirnar af þessum má finna í bókinni minni góðu :)
Svo saumaði ég eina skikkju á stubbinn, þeir stæka hratt þessir gaurar og skikkjurnar þurfa að vera vel síðar. Hún sló í gegn, enda vel síð, með hettu og tölu. Sló margar flugur í einu höggi þar ...og mamman var sátt við að nota gamla Ikea gardínu í verkið.
Svo rann ein jólasvinahúfa af nálinni í gærnu og bláu handa þeim yngri, hún er heldur lítil en er búin að vera mikið notuð, þar sem sú rauða hvarf þann 6. jan. Sá eldri vildi líka eina og því er ein næstu klár handa honum. Ætli ég verði ekki að lokum að gera þá þriðju svo stubbur fái húfu sem passar á sig. Myndir af þeim koma síðar.
þriðjudagur, september 10, 2013
Er sumarfríið búið
Það er spurning hvort sumarið sé liðið og sumarfrís bloggið mitt líka. Það er svo aftur spurning hvort sumarið hafi komið í raun en það er svo allt annað mál.
Ég hef ekki sitið auðum höndum þó svo að ég hafi ekkert verið að pósta hérna inn, en það verður vonandi breyting á á næstu dögum.
Spennandi fréttir samt að bókin er væntanleg til landsins í vikunni og væntanlega í búðir eftir helgi... jii hvað þetta er spennandi.
bless í blii
ps. varð að losna við þetta páskablogg
Ég hef ekki sitið auðum höndum þó svo að ég hafi ekkert verið að pósta hérna inn, en það verður vonandi breyting á á næstu dögum.
Spennandi fréttir samt að bókin er væntanleg til landsins í vikunni og væntanlega í búðir eftir helgi... jii hvað þetta er spennandi.
bless í blii
ps. varð að losna við þetta páskablogg
sunnudagur, mars 31, 2013
Gleðilega páska
![]() |
| Málsháttur |
![]() |
| Páskasæla |
![]() |
| Páskaskraut |
![]() |
| Páskaungar |
![]() |
| Páskagott |
![]() |
| Páskanautn |
![]() |
| Páskagrín |
Lífið er ljúft. Páskafríið er búið að vera ein sæla. Matar sæla. Góður matur alla daga og í félagskaps góðs fólks. Páskadagur var sérlega ljúfur en þó sérstakur. Sá elsti svaf heima hjá ömmu og var mjög sáttur að vera þar án litla bróðurs. Svo fór hann í sveita ferð með afa og kom ekki heim fyrr en um kvöldið. Sá yngri svaf út og tók svo langan lúr svo við foreldrarnir heyrðum allt í einu í okkur og ég meira að segja opnaði bók!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)



















































