
Hún Kerla perla talar um 13. október og mér líst vel á. Hvar og klukkan hvað er það eina sem við eigum eftir að ákveða. Hverjir mæta er líka spurning. En eitt er víst, Fjóla, Kerla og ég verðum á staðnum. Enda nautning ótrúleg og drykkurinn góður.



Ég var að lesa mig til áðan á netinu og fjallagrös má nota í hvaða brauð uppskrift sem er, það vissi ég ekki þó að það sé mjög lógíst. Ég hef bakað sérstak "fallagrasa brauð" sem ég fann í eldgamalli uppskriftabók hjá mömmu á sínum tíma. Brauðið var ágætt en heilmikið vesen að baka það þannig að nú verður forvitnilegt að sjá hverning venjuleg brauðuppskrift smakkast. Hlakka eiginlega svolítið til að prófa það.
Svo er það blóðbergið, ylmandi góða og bleika blóðberg. Ohhh ég elska blóðberg það er eitthvað svo íslenskt. Ég ímynda mér oft að Birki og Blóðbergskrydd sé eins og Ísland mundi smakkast ef maður gæti borðað það og þá á lambakjöti að sjálfsögðu! En þar sem ég var að forvitnast á netinu þá las ég mér líka til að Blóðberg og Timian er í raun náskyldar jurtir. Þá er mjög gott að safna jurtinni, þurka hana og saxa og geyma allt árið og spara sér 236.- kr. sem krukkan af Timian kostar í Hagkaupum, plús að fá titilinn Grassa Gudda 2007.
sem myndin sýnir hér að neðan og er líka bleik við Blóðberg, en þetta er ekki blóðberg, man ómögulega hvað blessað grasið heitir en þetta er ekki Blóðberg (Lambagras... man það núna!). Lyktar ekki jafn vel og er erfiðara að týna, þannig að algjört bann að rugla þessu tveimur saman. Hef samt gert það sálf hérna á buffoló og tark árunum, en er nú eldri, vitrari og lægri í loftinu.