
Það er fátt betra en að kúra í rökkrinu. Þessa dagana hef ég fullkomna ástæðu til að kúra hjá litla kútnum mínum. Himneskt!

...og þá er fátt betra en að kveikja á nokkrum kertum og allt verður ljúfara.

Þar sem ég á erfitt með að henda hinu og þessu á ég nóg af barnamatskrukkum frá því að frumburðurinn var nærri tannlaus. Ég fann þrjár sem allar voru af sömu stærð og gerð, og þreif límið af þeim með naglalakka hreinsi. Svo fann ég blúndu ofan í skúffu sem ég skellti utan um. Upphaflega ætlaði ég að hekla blúnduna, en tíminn sem ég hef þessa dagana í föndur er ekki of mikill svo að ég lét blúnduna duga. Kertin fást svo í Tiger á lítið sem ekkert! Ódýrt, hómý og fallegt!
Mjög fallegt hjá þér.
SvaraEyðaHvar fékkstu bandi sem þú notar utan um krukkurnar?
Búin að leyta mikið af svona bandi.
Kv. Anna
Meina auðvitað BANDIÐ
SvaraEyðaKv. Anna
...þú ert væntanlega ekki að tala um blúnduna? Hana fékk ég frá Ömmu Ínu, bandið fékk ég í Tiger, uppáhalds búðinni minni :)
SvaraEyðatakk fyrir, ætla að fara í Tiger.
SvaraEyðaSkemmtileg síða hjá þér, margt fallegt sem þú ert að gera, margar góðar hugmyndir.
Kv. Anna
Yndisleg hugmynd! Ætla þokkalega að stela henni :)
SvaraEyðakk,
Arndís
fallegt!
SvaraEyðaAnnalú