Ég er voða montin af því að hafa verið kölluð til og beðin um að leiðbeina Hönnunarhópi Rauða krossins í Kópavogi. Þetta er hópur af stelpum sem koma saman aðra hverja viku og skapa og búa til nýja hluti úr gömlum og selja á mörkuðum deildarinnar. Flottur hópur.
Ég var beðin að leiðbeina þeim með slána, en ég endaði á að kenna þeim að gera blómin, því það er svo gaman að skreyta allt með þeim...
Hér koma nokkrar myndir frá kvöldinu
Þyrfti að hitta þig oftar Marín til þess að koma mér í prjóna/hekl/föndurgírinn.
SvaraEyðaÞetta hlýtur að fara að koma hjá mér.
...og ég þarf að hitta þig Anna oftar til að koma mér í rauðvínsgírinn :)
SvaraEyðaVið ættum að geta reddað þessu!